Norræni tískutvíæringurinn sló í gegn!

Með yfir 60 hönnuðum, listamönnum, tónlistarmönnum og fyrirlesurum víðsvegar frá í heiminum, varð Norræni tískutvíæringurinn bæði vettvangur gagnrýnnar hugsunar hvað varðar sjálfbærni og innblástur til framtíðar.

Í ár var tíska frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi í brennidepli þar sem framúrskarandi hönnun eftir Anna Bæk (FO), Barbara Í Gongini (FO), Else Möller (GRL), Mundi (IS), ásta creative clothes (IS), Spaksmannsspjarir (IS) and STEiNUNN (IS) var sýnd á sýningunni Frammi fyrir sköpunarkraftinum sem var í sérsmíðaðri hringekju fyrir utan Norræna húsið.

Tilraunastofa

Hinir hlutar sýningarinnar voru í anddyri Norræna hússins og í kjallara. Þetta eru sýningarnar, Tilraunastofa -er sýnir sköpunarferli hönnunar og efnisnotkun frá ásta creative clothes (IS), Mundi (IS), Else Möller (GRL), Nauja Lynge Lyngesen (GRL), Else Lennert (GRL), Isaksen Design (GRL), Guðrun & Guðrun (FO) and Barbara Í Gongini (FO)og Skartgripahellir, göng með undurfögrum skartgripum frá Aurum (IS), Dýrfinna Torfadóttir (IS), Helga R. Mogensen (IS), Barbara Í Gongini (FO), Vigdís (FO) og Nauja Lynge Lyngesen (GRL).

Viðburðir

Norræni tískutvíæringurinn samanstóð einnig af daglegum viðburðum í Norræna húsinu. Ráðstefnur, fyrirlestrar og námskeið um aðkallandi málefni innan tískuheimsins voru í brennidepli ásamt margvíslegum uppákomum tengdum tísku s.s. Tískumarkaði, tónleikum og tískusýningum. Á meðal fyrirlesara voru m.a. Karl Aspelund, prófessor við Háskólann á Rhode Island, Kristine Jensen landslangsarkitekt frá Danmörku og Eva Kruse framkvæmdastjóri Tískuvikunnar í Kaupmannahöfn.



Í raun má segja að öll Reykjavík hafi tekið þátt í tvíæringnum því viðburðurnir voru vel sóttir og alþjóðleg pressa fylgdi fyrsta norræna tískutvíæringnum eftir með umfjöllun. Það er okkur heiður að hafa verið fyrstu gestgjafar þessa frábæra viðburðar. Hver veit hvar hann verður haldinn næst eftir tvö ár?

Þakkir

Norræna húsið vill þakka öllum gestum og hönnuðum sem tóku þátt í norræna tískutvíæringnum 2009 og hjálpuðu til við að skapa kyngimagnaðan og lifandi tvíæringin. Sérstakar þakkir fá NORA og NATA fyrir rausnarlegan stuðning sinn við verkefnið sem og menntamálaráðuneyti Færeyja, Grænlands og Íslands sem gerðu okkur kleift að halda þessa hátíð sem norræni tískutvíæringurinn var.

NORDIC HOUSE - Sturlugötu 5 - 101 Reykjavík - Ísland Opening Hours: Mo-Sun 8pm - 7pm
< April 2009
Su Þr Mi Fi La
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930
Skrá sig á póstlista: